bloggsvæði Önnu
30.11.2006 23:49:14 / annakj

afmæli

Jæja þá er örverpið orðið 13 ára  en ég alltaf jafn ung eða það held ég og ætla að vona að þið haldið það líka ég veit alveg hvað ég er ung  og Amma vá hvað ér er rík það eru bara komin tvö Kristófer Helgi sem verður 9 ára  ætti ekki að segja frá því en er samt montin svo er það Karen verður 1 árs 8 febrúar já sami mánuður og mamma en  hún er 18 feb. við tölum ekki neitt um árið  en erum bara ungar. Bara svona til að svala forvitninni þá eru 20 ár á milli Hanna Kristín stútent og Jóhann skírður. kveð í bili  og kveðjur til allra.
Munið gestabók


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 13:40:28 / annakj

ferðalög.

Jæja þá er maður bara lakkstur í flakk. Var að koma frá Reykjavík í gær ,nýtti ferðina vel læknar námskeið atvinnuviðtal sem skilaði sér svo ég er búin að fá vinnu Flottur titill Rekstrarstjóri Fjardarbíós svo hann skiptir minnsta máli bara að maður getur rekið bíóið og reynt að aukatekjur þess. Sumir hoppuðu vá sá var glaður fæ ég þá frítt í bíó mamma.
og svarið var já vá hvað honum létti þarf þá ekki að suða um á að fara .
Kem bara heim að skipta um föt  förum aftur til Rvk á þriðjudag og út til Hönnu Kristinar +a miðvikudag  komum aftur heim á sunnudag
kveðja

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 14:57:52 / annakj

málað

Sit og fæ mér smá pásu  er að mála stofuna og ganginn reyndar fer ég bara í allar kverkar og meðfram gólfum og hurðum þá er reyndar lítið eftir bara rúlla en það gerir Björn ekki er mikil not af Kjartani fynnst þetta bara óþarfi það var nú málað og þá til hvers aftur  haha.
Það er nú orðið haustlegt hjá okkur eins og eflaust víðar . Þá er farið að safna í lónið á Kárahnjúkum en fólk samt ekki alveg búið að gefast upp það er en hægt að hætta við skil ekki þetta fólk þegar verkinu er lokið. Er enn þá dugleg fer alltaf út á hverjum morgni og fæ mér göngutúr  er mjög montin . Jæja berst að halda áfram þíðir ekki að slóra.
Kveðja frá Reyðarfirði 

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 16:37:21 / annakj

gestir

Gaman gaman fékk gesti í morgun frænka hennar Steinu , Sólrún og Lalli hennar maður eru á ferðalagi ætla að vera viku á Austurlandi og fara síðan til Akureyrar og vera viku húsbóndinn verður 50 ára og það á að halda upp á það þar til hamingju Lalli.
Þá er skólinn byrjaður hjá Jóhanni og honum finnst það bara gaman allir að hittast eftir sumarið 2 nýir krakkar bættust við í bekkinn hans og tvíburar væntarlegir já það fjölgar hér á Reyðarfirði. Kjartan ætlar að skipta um bíl selja Bensan og kaupa fjórhjóladrifinn bíl það borgar sig ef það sjóar hér í vetur hann þarf að komast í vinnu og þegar hann fer er ekki byrjað eða búið að riðja. Er að fara til Reykjavíkur á sunnudag , ætla á námskeið um andleg mál byrjar á mánudag og er í þrjú kvöld hlakka til.
Svo er ég líka svo heppin að Hanna Kristín og krakkarnir koma til landsins 2 sep Hanna Kristín er að fara í brúðkaup já ég er heppin að það er  á sama tíma og ég er í bænum, fæ að fara í ömmuleik . Þá eru það nokkur orð um veðrið já haustið nálgast blés svoldið í gær og svo hefur ringt  heldur betur í dag.
 Kveðjur til allra héðan að austan.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 13:22:11 / annakj

rólegt

Jæja best að láta heyra frá sér eftir smá hvíld. Jóhann skemmti sér vel á Úlfsjótsvatni fullt af sætum stelpum vill helst flytja í vesturbæinn.Eftir dvöl þar kom hann til okkar á Akureyri flaug til Akureyrrar og gekk bara vel að fljúga svona einn. Vorum í 4 daga á Akureyri og veðrið gat ekki verið betra um 20 stig og sól alla dagana stundum getur hún verið svoldið ágeng þegar maður þarf að klæða sig vegn hita. Skoðuðum jólahúsið og fórum Vaðlaheiðina og inn í Vaglaskóg  það var líka farið í Kjarnaskóg og tekinn góður göngutúr. Heilsaði upp á Hlíf á Brunná. Mikið var gott að koma heim og sólin skein EKKI já þetta er satt það var svoldið erfitt  að sitja í bíl í miklum  hita. Erum að fara í boð á eftir hjá Bectel eigandinn er sjálfur að koma og auðvita heitir hann Bectel eða vona að hann komi er búinn að reyna tvisvað , fyrst var Fagridalurinn ófær síðan bilaði flugvélin og hann þurfti  að snúa við en þetta hlítur að takast í þriðju tilraun.  Gaman væri að gestir mundu nú kvitta fyrir komu .
Kveðjur að Austan 

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 21:34:16 / annakj

regn

Þá er Jóhann farinn á Úlfsljótsvatn var heppinn að ná.
Það hafði gleymst að láta okkur vita um brottfarea tíman var með blað sem sem stóð kl 13 en það átti að fara kl. 9  það var hringt í mig  9.15 ég bað þau að bíða eftir honum hringdi heim til Harald og vakti Jóhann og sagði honum að flíta sér á fætur síðan hringdi ég í Steinu og var heppin að hún var í sjoppuni svo hún fór að ná í Jóhann og skutla upp í Hraunbæ þetta gekk bara vel ekki 30 mín Takk Steina.
Fengum gesti á miðvikudag Lalli og Móa frá Akranesi Lalli er sonur Hallóru heitinnar þetta eru eflaust síðustu gestirnir á þessu ári  nema  Harald og Inga láti sjá sig.
Ekki gleyma gestabókinni . Góða nótt

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 10:33:08 / annakj

helgin búin

Þá er þessi mesta ferðamannahelgi búinn. Héðan var farið á Norðfjörð  á Neistaflug og sólin brosti við okkur. Í gær var farið á Vopnafjörð og bærinn skoðaður hef ekki komið í snyrtilegri bæ og hef nú víða farið. Berti er farinn en Gunnar fer ekki fyrr en á sunnudag með Jóhanni sem er að fara á Úlfljótsvatn að skátast hann er orðin mjög spenntur. Þeir fljúga saman gaman hjá þeim. Ekki kalt hérna 15 stig þegar þetta er skrifað .Kveðjur til allra

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 16:27:06 / annakj

vinir

Jæja styttist í verslunnarmannahelgina og auðvita er besta veðrinu spáð hér.
Stutt að fara á útihátíð skreppum á Neistaflug á Norðfirði fórum í fyrra og var bara mjög gaman og veðrið gott þá.Það eru komnir vinir í heimsókn Gunnar skólabróðir Jóhanns frá Akranesi og Berti vinur hans Kjartans líka frá Skaganum hann var líka hér í fyrra um verslunnarmannahelgina.  Ungarnir flognir úr hreiðrinu svo ég þarf ekki að passa Situ vegna þeirra.Kristófer ef þú lest þetta þá fékk amma kortið frá þér í dag takk fyrir og mikið ertu duglegur að skrifa íslensku þú sem ert bara búinn að vera í skóla í Danmörku. kveðja úr sólinni  kannski orðið svoldið þreytt  en svona er þetta bara.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 16:06:06 / annakj

sumarbúðstaður

Jæja kominn föstudagur og búin að gera margt síðustu daga.
Á þriðjudaginn fórum við í heimsókn í búðstaðinn hjá Erlu og Bjössa og borðuðum með þeim ,þar voru líka Rut og Sara gaman að hitta þær.
Á miðvikudaginn komu nýir gestir og þeir voru frá Selfossi Sigrún og Magnús og voru hjá okkur um hádegið og ég gaf þeim súpu og brauð  já alltaf gaman að fá gesti.
Í gærkvöldi komu síðan Erla og Bjössi með krakkana í mat til okkar og fengu kjötbollur með kartöflumús  uppáhaldið hans Heiðars Inga þau voru að leggja á stað suður í morgun.Hér er bara ágætis veður smá skúrir í morgun en núna er sólin að brjótast í gegn.Erum að hugsa um að skreppa Á Franskadaga í kvöld á Fáskrúðsfjörð. Brekkusöngur í kvöld. Sólar kveðjur héðan að austan

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 14:23:46 / annakj

ungar

Kominn mánudagur og búinn að fá 9 gesti síðan ég skrifaði síðast.Á fimmtudag kom Hermann og Laufey með börnin sín Björn var að vinna fyrir þau.Á sunnudag kom svo Erla systir og Bjössi með barnabörnin 3 .Myndarbörn sem Maren á .
Við borðuðum saman auðvita úti þarf ekki að segja frá því allaf gott veður.Síðan fór Björn og síndi þeim fræmkvæmdirnar úti á svæði og kom þeim sérstaklega á óvart hvað allt er snyrtilegt þó allar þessar fræmkvæmdir eiga sér stað.Fann heiður í garðinum mínum fyrir skömmu og kíkti svo og þá  komu 4 goggar  í ljós mikið falleg sjón.Passa Situ vel svo hún  geri  ekki neitt ljótt. Jæja þá er bara að bíða eftir næstu gestum er orðin spennt hver það verður. kveð í bili ætla aðeins út í sólina.

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 14:58:52 / annakj

Gaman gaman

Búin að fá gesti í dag Sævar vinur hans Harald kom og foreldrar hans og bróðir.
Harald hann er búin að ná þér  og hann ´býr í Danmörku haha.
Er að reyna að slá en alltaf trufluð af gestum sem er bara gaman ætla að gera eina tilraun enn kveðjur frá Reyðarfirði

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 15:14:39 / annakj

meiri gestir

Hæ langt síðan ég hef skrifað.
Nú koma gestir dag eftir dag gaman gaman mættu kannski stoppa aðeins lengur ,en skil það er svo margt að skoða hér fyrir Austan. Ágústa og Gunni bróðir komu í gær og hjón með þeim.Björn fór með þau að skoða svæðið og mikið voru þau ánægð með þá ferð.
Hrafnhildur systirdóttir Björns kom áðan og hennar fjölskylda voða gaman að fólk kíki við fengu bara  kaffi og súkkulaði allir að skoða meira nota tíman vel.Fréttir af verði búið að vera alveg æði sól í morgun og 17 stig bara gott að sólin hvíli sig smá en ekki lengi Erla og Bjössi ætla að koma í næstu viku og þá verður auðvita sól.
bestu kveðjur að Austan   

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 21:20:31 / annakj

Gestabók

Hæ hvernig væri að skrifa í gestabókina mína ,gaman að sjá hverjir heimsækja mig.
kveðja frá Reyðarfirði.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 18:21:32 / annakj

Tómlegt.

Já nú er tómlegt allir farnir. Mikið var gaman að sjá hvað Kristófer og Karen hafa stækkað síðan um páska.Síðasta föstudag var farið og Borgarfjörður eystri skoðaður ,laugardagur fór í ferð til Kárahnjúka hver að vera síðastur að fara þar um.
Sunnudagur var rólegur verið heima og farið niður  á Andarpoll á veiðar.Björn fékk einn 6 punda og annan 3 punda sem Jóhann landaði.Hanna Kristín og Ottar fóru um víðan völl Eskifjörð Norðfjörð Fáskrúðsfjörð og Stöðvarfjörð já flakk á þeim og ég heppin fékk að passa loksins. Svo kom Steina vinkona í heimsókn eini gesturinn í afmælinu mínu,  haha ætla ekki að segja hvað ég er gömul  ung.Hér er búið að vera heitt í allan dag um 20 stig er ekki að skrökva þetta er bara svona hér á Austurlandi ekki kvarta ég . Jæja best að fara að bera á sig sólarvörn.
Kveðjur og takk  fyrir heimsóknirnar.
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 17:49:45 / annakj

Bónus

Jæja þá er maður búinn að versla var í Bónus.
Veit að tengdarsonurinn er mikill matmaður svo það er eins gott að það sé eitthvað til í skápunum geðu svo vel Ottar minn þú bakar kannski pönnsur fyrir mig.
Hlakka til að fá ykkur í heimsókn bara 2 dagar . Bíðum spennt.
kveðja Anna

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2